Vegan möffins með súkkulaðibitum
/Í dag ætla ég að deila með ykkur uppskrift af gómsætum súkkulaðibita-möffins. Þessi uppskrift hefur verið í uppáhaldi hjá mér lengi og það var því löngu kominn tími til að skella henni hérna inná bloggið. Þessar möffinskökur minna mig á það þegar ég var barn. Í hvert sinn sem við fórum í ferðalög bakaði mamma möffins sem við tókum með okkur í gömlum Mackintosh stampi. Ég man hvað mér þótti það ótrúlega spennandi. Þessar möffinskökur vekja upp svipaða spennu hjá mér á meðan þær eru í ofninum.
Kökurnar hef ég bakað í mörg ár og þær eru einmitt fullkomnar í ferðalagið, afmælisveisluna, brunchinn eða einfaldlega fyrir notalegan dag með fjölskyldunni. Uppskritin er virkilega auðveld og því tilvalin til að baka með krökkunum. Ég man hvað mér þótti alltaf yndislegt að fá að taka þátt í möffinsbakstrinum með mömmu.
Uppskriftin er ekki einungis einföld, heldur innihalda kökurnar aðeins 7 hráefni sem flestir eiga til uppi í skáp. Þið sem hafið fylgt blogginu okkar í svolítinn tíma vitið að við erum ekki mikið fyrir flóknar uppskriftir sem innihalda alltof mörg hráefni sem enginn þekkir. Við elskum allt sem er einfalt og eru þessar möffins því lýsandi fyrir okkur. Þrátt fyrir einfaldleikann gefa kökurnar ekkert eftir hvað bragðið varðar. Þær eru dúnmjúkar að innan og undursamlega bragðgóðar.
Þar sem ég fann engin falleg pappírsform fyrir kökurnar ákvað ég að prufa að útbúa mín eigin úr bökunarpappír. Siggi klippti niður fyrir mig sirka 13x13 cm arkir úr pappírnum. Ég mótaði þær með því að leggja þær yfir formin á möffins skúffunni og þrýsta þeim svo niður með bolla sem passaði akkúrat í hólfin. Formin komu mjög skemmtilega út og voru góð tilbreyting frá þessum hefðbundnu pappírsformum.
Hráefni:
5 dl hveiti
2 og 1/2 dl sykur
1 msk lyftiduft
2 tsk vanillusykur - eða vanilludropar
100gr vegan smjör - Krónusmjörlíkið hentar mjög vel í þessa uppskrift
3 og 1/2 dl Oatly haframjólk - hvaða jurtamjólk sem er ætti að þó að virka
200gr suðusúkkulaði
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°c.
Blandið saman þurrefnunum í stóra skál.
Bræðið smjörið og hellið því saman við mjólkina.
Hellið blöndunni útí stóru skálina og hrærið vel saman. Ef þið eigið rafmagns handþeytara myndi ég nota hann en þar sem ég á eftir að útvega mér svoleiðis lét ég duga að nota hefðbundinn písk sem virkaði líka vel.
Saxið niður súkkulaðið og hrærið því saman við deigið með sleif.
Deilið deiginu í möffinsformin og bakið í sirka 12-18 mínútur. Ég myndi segja að það komi svona 9-15 kökur úr hverri uppskrift en það fer bara eftir því hversu stórar kökur þið gerið.
Leyfið kökunum að kólna í nokkrar mínútur áður en þær eru bornar fram. Mér þykja kökurnar bestar volgar með glasi af ískaldri Oatly haframjólk. Þær eru samt yndislega góðar líka kaldar.
Vona að þið njótið! :)
Helga María