Quesadilla með brúnum linsum og nýrnabaunum
/Í þessari viku deilum við með ykkur frábærri uppskrift af quesadilla sem tekur sirka 10 mínútur að útbúa. Við fengum í hendurnar nýlega baunir frá nýju merki sem heitir Oddpods sem ég notaði í uppskriftina en þær eru virkilega góðar. Baunirnar koma ólíkt flestum forsoðnum baunum ekki í niðursuðu krukku heldur í fallegum pokum og þær eru tilbúnar til matar beint úr pokanum. Þar af leiðandi eru þær ekki geymdar í vökva og halda því næringarefnum betur og innihalda engin aukaefni.
Þessi réttur er alveg lygilega góður miðað við hvað hann er einfaldur og fljótlegur. Það tók mig um 10 mínútur frá því ég byrjaði þar til þetta var komið á borðið. Ég notaði brúnu linsurnar og nýrnabaunirnar í réttin en það má í rauninni nota hvaða baunir sem er en OddPods bíður einnig upp á kjúklingabuanir, gular linsur og “chana dal” baunir. Baunirnar frá OddPods má nálgast í Nettó.
Hráefni
1 pakki brúnar linsur frá OddPods
1 pakki nýrnabaunir frá OddPods
1/2 rauðlaukur
1/2 krukka salsasósa
1/4 rauð paprika
mexíkósk kryddblanda eða kryddin hér að neðan
1/2 tsk cumin
1/2 tsk paprika
1/2 tsk laukduft
1 tsk blandaðar jurtir
salt
safi úr 1/2 lime
Vegan ostur
1 pakki tortilla pönnukökur
Aðferð:
Setjið baunirnar í skál og stappið þær aðeins með gaffli.
Saxið grænmetið smátt niður og blandið saman við baunirnar ásamt salsasósunni og kryddunum saman við.
Setjið smá ost á hverja pönnuköku of smyrjið fyllingu á helmingin. Brjótið pönnukökurnar saman og grillið í panini grillið eða steikið á hvorri hlið í nokkrar mínútur á pönnu.
Berið fram með sýrðum rjóma og avocado salati.
- Þessi færsla er unnin í samstarfi við Oddpods á Íslandi hjá Danól heildsölu -