Pinto-villisveppapylsur
/Ég hélt Brunch um daginn og ákvað þrátt fyrir að mikið sé af vegan pylsum á markaðnum í dag, að gera mínar eigin. Þær komu ótrúlega vel út en þessa uppskrift má einnig nota í buff eða sem grænmetiskæfu ofan á brauð og kex. Það er hægt að gera stóra uppskrift og frysta pylsurnar eða buffin en mér finnst það ótrúlega þægilegt t.d. til þess að grípa með mér í nesti þegar ekki hefur gefist mikill tími í að útbúa eitthvað annað.
Hráefni:
2 dósir pintobaunir (480 gr eftir að vatnið er tekið frá)
2 msk olía
1 bolli frosnir villisveppir (mælt áður en þeir eru steiktir)
1/2 meðalstór laukur
2 hvítlauksrif
3 sólþurrkaðir tómatar
1 msk franskar jurtir (herbs de provence krydd)
1 msk grænmetiskraftur
salt og pipar eftir smekk
2 dl hveitiglútein eða malað haframjöl (því er sleppt ef gera á grænmetiskæfu)
Aðferð:
Steikið laukinn, sveppina og hvítlaukinn upp úr olíunni í góðan tíma.
Setjið allt nema hveitiglúteinið eða haframjölið í blandara eða matvinnsluvél og vinnið saman þar til vel blandað.
Hrærið hveitiglúteininu eða haframjölinu út í með sleif.
Mótið pylsur, bollur eða buff og bakið við 180°C í 20-25 mínútur.