Bananamöffins
/Þegar ég á banana sem eru orðnir mjög þroskaðir skelli ég yfirleitt í þessar góðu bananamuffins en ég baka þær örugglega að minnsta kosti einu sinni í viku. En þær eru ótrúlega góðar og hollar og fara einstaklega vel í nestisboxi
Hráefni:
1 bolli spelt frá himneskri hollustu
1/2 bolli malað haframjöl frá himneskri hollustu
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk kanill
1 bolli stappaðir bananar (rúmlega 3)
1/3 bolli hlynsíróp
1 bolli plöntumjólk
1 bolli saxað súkkulaði eða rúsínur
Aðferð:
Blandið þurrefnunum saman í skál
Bætið öllu nema súkkulaðinu/rúsínunum saman við og hrærið saman. Setjið súkkulaðið/rúsínurnar síðast og blandið við deigið.
Bakið muffinsarnar í 18-20 mín í 175°C heitum ofni.
Njótið vel
- Júlía Sif