Pönnubrauð
/Heimabakað brauð getur sett punktinn yfir i-ið þegar kemur að ýmsum máltíðum. Það er því virkilega hentugt að kunna að gera einfalt og fljótlegt brauð til að hafa með matnum. Ég komst fyrir nokkru upp á lagið með að gera pönnubrauð en það er einstaklega þægilegt þar sem þarf hvorki að hefa það né baka í ofni. Hráefnunum er einfaldlega skellt saman og brauðið steikt í nokkrar mínútur á pönnu. Þetta brauð passar fullkomlega með alls konar pottréttum og súpum.
Hráefni:
4 dl spelt hveiti
2 dl vatn
örlítið salt
Aðferð:
Blandið öllum hráefnunum saman og bætið við meiru hveiti ef deigið er blautt.
Skiptið deiginu í 6 litlar kúlur.
Fletjið kúlurnar út og steikið í nokkrar mínútur á heitri þurri pönnu.
Gott er að pensla brauðið með vegan hvítlaukssmjöri um leið og það kemur af pönnunni en það er alls ekki nauðsynlegt.
-Veganistur