Tvennskonar OREO eftirréttir │ Veganistur TV │2. þáttur
/Brownie með OREO kexi smákökudeigi
Brownie deig
4 Hörfræegg
4 msk mölup hörfræ
12 msk vatn
350 gr vegan smjörlíki eða smjör
5 dl sykur
2 tsk vanilludropar
5 dl hveiti
2 1/2 kakóduft
2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
3 dl Oatly haframjólk
1 pakki double cream eða venjulegt OREO
Smákökudeig
100 gr vegan smjör eða smjörlíki
1 dl sykur
3/4 dl púðusykur
1 hörfræegg (má skipta út fyrir 1/4 dl Oatly haframjólk
1 msk möluð hörfræ
3 msk vatn
2 1/2 dl hveiti
1/2 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
100 gr suðusúkkulaði eða gott vegan súkkulaði
Aðferð:
Byrjið á því að útbúa brownie deigið en þá er byrjað á því bræða saman smjörlíki, sykurinn og vanilludropana á meðalháum hita svo það brenni ekki við. Hrærið í smjörlíkisblöndunni allan tíman.
Blandið þurrefnunum í skál og hrærið þau örlítið saman.
Hellið smjörlíkisblöndunni, mjólkinni og hörfræeggjunum út í og hrærið vel saman.
Hellið deiginu í stálpönnu sem þolir að fara í ofn, eldfast mót eða litla ofnskúffu.
Brjótið oreo kexin of dreyfið þeim jafnt yfir kökuna
Útbúið smákökudeigið en þá er byrjað á því að þeyta saman smjörlíki, sykur og púðursykur þar til létt og ljóst
Bætið út í hörfræegginu út í og þeytið aðeins lengur
Blandið þurrefnunum saman í skál og bætið þeim út í smjörblænduna og hrærið vel saman. Deigið á að vera frekar klístrað en samt þannig að hægt sé að móta það í höndunum.
Dreyfið deiginu jafnt yfir alla kökuna og bakið hana í u.þ.b. 45 mínútur í 180°C heitum ofni. Takið kökuna út og leyfið henni að standa í allavega 15 mínútur áðurn en hún er borinn fram.
Kakan hentar fullkomlega með Oatly ís.
Djúpsteikt oreo
Pönnukökudeig
2,5 dl hveiti
1 msk sykur
2 tsk lyftiduft
örlítið salt
2,5 dl mjólk
2 msk olía
1 tsk vanilludropar
2 tsk eplaedik
1 pakki Double cream eða venjulegt OREO
2 pakkar (sirka 1 kg) palmin feiti eða önnur góð steikingarolía
Aðferð:
Útbúið pönnukökudeigið en þá byrjið þið á að blanda þurrefnunum saman í skál og hræra örlítið saman.
Bætið mjólkinni, olíunni, vanilludropunum og eplaediku út í og hrærið
Hitið steikingarolíuna á hæstu stillingu þar til hún hefur bráðnað alveg. Mér finnst gott að prófa hvort olían sé orðin nógu heit með því að setja smá pönnukökudeig út í og sjá hversu fljótt það er að verða steikt og fallega gyllt. Þegar pönnukökudeigið verður fallega gyllt á sirka 1 mínútu er það tilbúið og fínt að lækka hitan um 1 eða 2. Ég t.d. lækka úr 9 í 7,5.
Veltið hverju oreo kexi fyrir sig upp úr pönnukökudeigi og setjið út í olíuni. Steikið í sirka 1 til 1,5 mínútu á hvorri hlið og takið síðan upp og leyfið hverri köku að hvíla í nokkrar mínútur á eldhúsbréfi áður en þær eru bornar fram.
Kökurnar eru fullkomnar með Oatly ís eða vegan þettur rjóma.
Þessi færsla er unninn í samstarfi við Krónuna og Oatly á Íslandi.