Rósakál með ristuðum möndlum og appelsínuberki
/Ég uppgvötaði rósakál fyrir nokkrum árum. Mér hefði eiginega aldrei dottið í hug að mér myndi þykja það gott, því ég hafði oft heyrt frá öðrum að það væri hrikalega vont. Því er ég algjörlega ósammála, og í dag borða ég rósakál í hverri viku. Yftirleitt kaupi ég það frosið og borða sem meðlæti með mat, en um jólin kaupi ég það ferskt og útbý það á aðeins hátíðlegri máta.
Ég hef smakkað margar skemmtilegar og gómsætar uppskriftir sem innihalda rósakál, eins og gratín og fleira gúrmé. Yfir hátíðirnar er ég þó vanalega með kartöflugratín, sósu og fleira sem inniheldur rjóma eða mæjónes, svo ég vil hafa rósakálið aðeins meira ferskt.
Þar sem jólamaturinn getur tekið langan tíma er svo gott að gera meðlæti sem þarfnast ekki mikillar fyrirhafnar. Þetta rósakál er einmitt dæmi um svoleiðis meðlæti en smakkast á sama tíma ótrúlega vel og passar fullkomlega yfir hátíðirnar.
Rósakál með appelsínuberki og möndlum
400 g ferskt rósakál
Smá olía til að steikja upp úr
1-2 tsk hlynsíróp
1 dl möndlur
2 msk appelsínusafi
börkur af einni appelsínu
salt og pipar
Aðferð:
Skerið rósakálið í tvennt og takið botninn af ef hann er mjög stór og harður
Saxið niður möndlurnar og þurrristið á pönnu. Takið frá þegar þær eru orðnar ristaðar
Hitið olíu á pönnu og bætið rósakálinu út á
Steikið það í smá stund þar til það er orðið svolítið gyllt á litinn
Bætið út á pönnuna appelsínusafanum og sírópinu og steikið þar til rósakálið er orðið svolítið dökkt
Bætið þá út á möndlunum, berkinum, salti og pipar og steikið örlítið í viðbót.
Berið fram heitt eða kalt
Njótið
Veganistur