Tacoveisla - Heimagerðar taco pönnukökur með Anamma-bitum, ostasósu og hrásalati
/Þessi dásamlega uppskrift varð til í síðustu viku og sló algjörlega í gegn hjá mér og vinum mínum. Ég hef alltaf verið mikið fyrir taco og finnst virkilega gaman að leika mér með hráefnin. Í vetur komst ég upp á lag með að baka mínar eigin tortilla vefjur og ég reyni að nýta tækifærið og gera það þegar ég hef smá tíma til að dunda mér við matargerðina. Heimabakað brauð nær einhvernveginn aldrei að valda manni vonbrigðum.
Þessa dagana erum við í samstarfi við Anamma á Íslandi og er þetta önnur færslan sem við vinnum í samstarfi við þau. Mér fannst tilvalið að nota bitana þeirra í þessa uppskrift og það kom að sjálfsögðu æðislega vel út. Við notum báðar vörurnar frá Anamma mikið, og er það því mikill heiður fyrir okkur að vinna með þeim. Þau leggja mikið upp úr því að útbúa vandaðar og góðar vegan matvörur, auk þess sem þeim er annt um umhverfið. Nýlega uppfærðu þau allar uppskriftirnar sínar og eru vörurnar því enn betri en áður. Ég var ekkert smá glöð að sjá hvað bitarnir voru fullkomnir í þennan rétt.
Taco hefur uppá svo margt að bjóða því það er algörlega hægt að aðlaga því sínum smekk. Við höfum báðar leikið okkur endalaust með það hvað við setjum í vefjurnar/skeljarnar og hérna að neðan sjáið þið mína uppáhalds samsetningu.
Uppáhalds samsetningin mín:
Heimagerðar tortillur eða tortillur frá Santa Maria
Santa Maria salsasóssa
kál
Gúrka
Tómatar
Anamma bitar
Kartöflur ofnbakaðar með salti, pipar og smá olíu
Avocado
Heimagerð ostasósa
Heimagert hrásalat
Kóríander
Mexíkóskir anamma bitar
Bitar frá Anamma
Olía til steikingar
Laukur
Santa Maria Taco kryddblanda
Vatn
Aðferð:
Steikið bitana og laukinn upp úr olíunni þar til þeir hafa fengið gylltan lit
Bætið taco kryddinu og vatni við samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
Heimagerðar tortillur:
1 bolli hveiti
1/2 tsk lyftiduft
Örlítið salt
3 msk olía
1/3 bolli vatn
Aðferð:
Blandið þurrefnunum saman í skál
Bætið olíu og vatni út í og hnoðið saman.
Skiptið deginu í 6 litlar kúlur, fletjið út í mjög þunnar pönnukökur og steikið á þurri pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið
Heimagerð ostasósa
1/2 bolli niðursneiddar kartöflur (afhýddar)
1/4 bolli niðursneiddar gulrætur
1/2 bolli kasjúhnetur
1 tsk gróft sinnep
2 sneiðar niðursoðið jalapeno + örlítið af safanum úr krukkunni
3-4 msk næringarger
1/2 til 3/4 haframjólk
salt
Aðferð:
Afhýðið kartöflurnar og skerið niður ásamt gulrótunum. Gufusjóðið eða sjóðið í vatni í 10 mínútur.
Setjið restina í blandara og blandið þar til sósan er silkimjúk (Ef ekki er notaður mjög kraftmikill blandari er gott að leggja kasjúhneturnar í bleyti í soðið vatn í sirka klukkustund áður en sósan er blönduð.)
Hrásalat
Hvítkál
Gulrætur
Vegan majónes
Örlítið eplaedik
Aðferð:
Skerið hvítkálið mjög smátt og rífið gulræturnar niður.
Blandið majónesinu og edikinu saman við.
Vonum að þið njótið
-Veganistur
-Þessi færsla er unnin í samstarfi við Anamma á Íslandi-