Salt-oumph og baunir
/Nú styttist óðfluga í sprengidaginn og því deilum við með ykkur í dag umfærðri uppskrift af hini fullkomnu sprengidagssúpu. Þessi súpa er í mjög miklu uppáhaldi hjá okkur en í hana setjum við að sjálfsögðu kartöflur, gulrætur og rófur.
Okkur finnst líka nauðsynlegt að hafa eitthvað matarmikið í súpunni í staðin fyrir saltkjötið og ákváðum við því að kíkja í frystin í hagkaup. Þar fundum við þetta dásamlega saltaða og smóký oumph sem passaði savo ótrúlega vel út í. Það er mjög bragðmikið og fullkomin staðgengill fyrir saltkjötið. Einn pakki passar fyrir sirka 4 skammta af súpu.
Súpan er svo ótrúlega einföld og mælum við með því að fólk geri stóra uppskrift því hún er jafnvel betri daginn eftir. Við steikjum oumphið sér á pönnu og setjum út í hvern og einn disk svo það haldi bragðinu sem best og soðni ekki í súpunni.
Baunasúpa
Undirbúningstími: 12 HourEldunartími: 2 Hour: 14 Hour
Sprengidagssúpa sem má að okkar mati njóta allan ársins hring líka
Hráefni:
- 500 gr gular hálfbaunir (sprengidagsbaunir)
- 2 - 2 1/2 lítri vatn
- 2 grænmetisteningar
- vel af salti
- 1/2 kg kartöflur
- 1/2 stór rófa
- 4 gulrætur
- 1 pakki salty og smóký oumph
Aðferð:
- Skolið baunirnar vel og setjið í bleyti daginn áður eða snemma um morguninn.
- Hellið vatninu af baununum og setjið í pott með vatninu og sjóðið í 1 1/2 klukkustund. Hrærið reglulega í súpunni á meðan og fleytið froðunni af eftir þörfum.
- Bætið grænmetinu, tening og smá salti saman við og sjóðið í 30 mínútur í viðbót.
- Smakkið til og bætið við salti eftir þörfum.
- Steikið oumphið og berið fram með.
- Færslan er unnin í samstarfi við Hagkaup -