Vegan taquitos
/Í dag deilum við með ykkur uppskrift af vegan taquitos. “Hvað er taquitos?” spyrja eflaust einhverjir, en taquitos eru litlar maíspönnukökur eða hveiti tortillapönnukökur fylltar með gómsætri fyllingu, rúllaðar upp og steiktar eða djúpsteiktar. Taquitos eru svo bornar fram með því sem mann lystir og að okkar mati er þetta hinn fullkomni helgarkvöldmatur. Krispí að utan með mjúkri fyllingu inní, bornar fram með gómsætum sósum, tortillaflögum og litríku grænmeti. Þetta er eitt af því besta sem við systur höfum eldað lengi!
Sólin hefur skinið mikið uppá síðkastið og við komnar í mikið grillstuð og hlökkum til að byrja að vinna að sumarlegum grilluppskriftum fyrir ykkur. Okkur þætti ótrúlega gaman ef þið sendið okkur hugmyndir af réttum sem ykkur langar að sjá, hvort sem það er matur á grillið eða aðrar sumarlegar uppskriftir.
Það er einmitt eitthvað svo sumarlegt við þessar gómsætu taquitos. Við erum ekki vissar hvort það eru fallegu litirnir, eða samsetningin af bragðinu, en það skiptir svo sem ekki öllu. Við sjáum fyrir okkur að gott sé að borða taquitos úti í sólinni með gómsætu meðlæti, eins og guacomole með miklum límónusafa. Gera svo einhvern ískaldan og safaríkan drykk með og njóta í botn.
Færsla dagsins er í samstarfi við Old El Paso, Við notuðum frá þeim white corn vefjurnar, Salsa dip, tortillaflögurnar og tacokryddið. Vörurnar frá Old El Paso eru ótrúlega gómsætar og henta ótrúlega vel í þennan frábæra rétt sem og fleiri af okkar uppáhalds mexíkósku uppskriftum.
Sjáiði litina? Ég er á því að allt sem er svona litríkt og fallegt sé gott. Allavega nánast allt hehe.
Vegan Taquitos
Hráefni;
Olía til að steikja upp úr
2 hvítlauksgeirar
1/2 rauðlaukur
1 pakki vegan “kjúklingur”
1 pakki tacokrydd frá El Old Paso
1,5 dl vatn
1 dl vegan rjómaostur
1,5 dl svartar baunir úr dós
1 - 1,5 dl Taco dip frá Old El Paso
Safi úr 1/2 lime
Nokkrir dropar af sterkri sósu (má sleppa) - við notuðum mangó-habanero sósu
Salt og pipar eftir smekk
Rifinn vegan ostur
2 pakkar White corn tortillur frá Old El Paso (í hvorum pakka eru 10 vefjur)
Aðferð:
Leyfið vegan “kjúklingnum” að þiðna.
Rífið “kjúklinginn” í sundur með því að nota tvo gaffla.
Pressið hvítlaukinn og skerið rauðlaukinn í þunna strimla.
Hitið olíu á pönnu.
Steikið hvítlaukinn og laukinn á pönnunni þar til þeir hafa fengið svolítinn lit.
Bætið vegan “kjúklingnum” á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur.
Bætið kryddinu og vatninu út á og steikið í nokkrar mínútur í viðbót.
Hellið baununum í sigti og skolið undir köldu vatni til að fá af þeim mest af safanum úr dósinni.
Bætið baununum á pönnuna ásamt salsasósunni og blandið vel saman við restina.
Bætið að lokum rjómaostinum, sterku sósunni og limesafanum út á og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur. Saltið og piprið ef ykkur finnst þurfa.
Takið af hellunni og leggið fyllinguna til hliðar.
Útbúið rúllurnar með því að leggja vefju á borðið, strá vegan osti í botninn, setja svolítið af fyllingunni í og rúlla upp. Það á að vera hægt að rúlla þetta frekar þetta svo passið að setja ekki alltof mikið af fyllingu í hverja. Endurtakið svo þar til þið hafið fyllt allar vefjurnar.
Hitið slatta af olíu á pönnu. Djúpsteikið hverja rúllu þar til hún fær gylltan lit.
Leggið á fat með eldhúspappír sem dregur í sig svolítið af olíunni.
Meðlæti sem við höfðum með rúllunum:
Icebergsalat
Ferskt jalapeno og habanero chili
Vegan sýrður rjómi
Vorlaukur
Tortillaflögur frá Old El Paso
Kóríander
Guacomole
Lárpera
Tómatur
Rauðlaukur
Hvítlaukur
Limesafi
Salt og pipar
Maísmajónessalat
Steikur maís
Vegan majónes
Vegan sýrður rjómi
Vorlaukur
Kóríander
Limesafi
Salt og pipar
Takk fyrir að lesa og njótið!
Helga María og Júlía Sif
-Þessi færsla er í samstarfi við Old El Paso á Íslandi-