Haustlegt kartöflusalat með Ceasar dressingu
/Ég held að það sé óhætt að segja að það sé komið haust og þar af leiðandi er fullt af fersku og góðu grænmeti í búðum akkúrat núna. Ég elska að gera góða rétti úr rótargrænmeti á haustinn og finnst það alltaf fylgjast haustinu á mínu heimili. Kartöflur eru eitt af þeim hráefnum sem er sérstaklega gott á haustinn að mínu mati og ef það er einhver matur sem ég held að ég gæti lifað alfarið á, þá eru það kartöflur. Ég bókstaflega elska kartöflur, hvort sem þær eru soðnar, ofnbakaðar, maukaðar í kartfölumús eða bara hvernig sem er.
Einn af mínum uppáhalds réttum með kartöflum er kartöflusalat. Ég elska að hafa eitthvað í matinn sem passar með kartöflusalat til að geta haft það sem meðlætii. Þetta salat er engu líkt og það er svo gott að það er nánast hægt að borða það eitt og sér. Það má einnig bæta út í það t.d. linsubaunum og meira af salati og þá er það orðið máltíð út af fyrir sig. Ég hins vegar elska að hafa sem mest af kartöflum og sem minnst af einhverju öðru og ef ég á að segja alveg eins og er stelst ég oft í að setja afgang af salatinu ofan á brauð og borða það þannig.
Salatið er einstaklega einfalt í undirbúningi, þar sem ég notast við Ceasar dressinguna frá Sacla Italia og þarf þar með ekki að krydda neitt aukalega nema mögulega setja smá salt. Það er þó best að smakka salatið til fyrst þar sem “reyktu bitarnir” eru einnig saltir.
Hráefni
500 gr kartöflur
Klettasalat, sirka 2 bollar
2-3 litlir vorlaukar
1 dl smokey bites frá Oumph
1/2 dl ristaðar furuhnetur
salt ef þarf
1/2 flaska vegan Ceasar sósa frá Sacla Italia
Aðferð:
Skerið kartöflurnar í bita, stærðin má vera eftir smekk, og sjóðið í um 10 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn. Ég hef hýðið á kartöflunum en það má að sjálfsgöðu taka það af.
Saxið niður vorlaukinn og klettasalatið.
Steikið reyktu bitana í nokkrar mínútur á pönnu, takið til hliðar og ristið síðan furuhneturnar á sömu pönnu þar til þær verða fallega gylltar.
Leyfið öllum hráefnum að kólna aðeins.
Blandið öllu saman í skál og hellið dressingunni yfir. Hrærið vel saman og smakkið til hvort að þurfi að salta aukalega.
-Njótið vel og takk fyrir að lesa.
- Þessi færsla er unnin í samstarfi við Sacla Italia á Íslandi -