Sjónvarpskaka og klassísk rjómaterta │ Veganistur TV │ 6.þáttur
/Sjónvarpskaka:
7,5 dl hveiti
3 dl sykur
3 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
7,5 dl vegan mjólk (ég notaði haframjólk)
2 dl rapsolía eða önnur bragðlaus olía
1,5 tsk vanilludropar
2 msk eplaedik
Kókosmjölskaramella
150 gr smjör
300 gr púðursykur
200 gr kókosmjöl
1 dl oatly mjólk
Aðferð:
Hitið ofninn í 175°c
Blandið saman þurrefnunum í stóra skál
Bætið restinni af hráefnunum útí og hrærið saman þar til engir kekkir eru.
Klæðið formið með bökunarpappír. Mér finnst gott að smyrja smá smjörlíki í botninn og hliðarnar og þá festist bökunarpappírinn vel við formið. Eins og ég tók fram hér að ofan nota ég form sem er 42x29x4 cm.
Hellið deiginu út í formið og bakið í miðjum ofni í 30 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn út þegar þið stingið í hana. Ég myndi kíkja á hana eftir 25 mínútur.
Útbúið kókosmjölskaramelluna á meðan að kakan er í ofninum
Bæriði saman í potti smjörlíkið og púðuryskurinn við meðalháan hita.
Bætið kókosmjölinu og mjólkinni út í þegar sykurinn hefur bráðnað alveg og hrærið saman og leyfið að hitna vel í svona 5 mínútur í viðbót.
Takið kökuna úr ofninum þegar hún er bökuð í gegn.
Spyrjið kókoskaramellunni yfir kökuna og setjið hana aftur í ofnin í 10 til 15 mínútur.
Rjómaterta eins og amma gerði hana
Hvítir rjómatertu botnar
Oatly vanillurjómi
1 dl vegan þeytirjómi
1 dl oatly vanillusósa
Niðursoðnir ávextir
Hvítt smörkrem
200 gr smjörlíki
1/2 dl Oatly vanillusósa
400 gr flórsykur
1 tsk vanilludropar
Aðferð:
Útbúið sama deig og hér að ofan en skiptið því í tvö kringlótt form og bakið eftir leiðbeiningum hér að ofan.
Þeytið saman vegan rjóman og Oatly vanillusósuna og setjið til hliðar.
Útbúið smjörkremið en þá byrjið þið á því að þeyta mjúkt smjörlíki í hrærivél, bætið síðan út í Oatly vanillusósunni og þeytið aðeins lengur. Bætið þá restinni af hráefnunum út í og þeytið saman.
Þegar kakan er sett saman byrja ég á því að bleyta upp í öðrum botninum með smá vökva úr niðursoðnum ávöxtum.
Næst sprauta ég hring á brúnina af botninum með smörkremi, fylli inn í hringin með vanillurjómanum og dreyfi síðan niðursoðnum ávöxtum yfir.
Það er best að leyfa kökunni að kólna vel inn í ísskáp áður en spurt er restinni af smjörkreminu yfir hana til að hún klessist ekki saman.
Dreyfið úr smjörkreminu yfir alla kökuna og skreytið að vild.
Þessi færsla er unninn í samstarfi við Oatly á Íslandi og Krónuna