Vegan galette með eplum og karamellusósu
/Jæjaaaa….
Þá erum við loksins mættar aftur eftir nokkra mánaða pásu sem fór að mestu í að útbúa matreiðslubókina okkar sem kemur út í loks ársins. Ég (Helga) er komin aftur til Piteå og byrjuð í skólanum og er hægt og rólega að komast aftur í góða rútínu.
Það hefur sjaldan verið jafn erfitt að byrja að blogga aftur eftir pásu eins og núna. Mér hefur liðið svolítið eins og ég sé uppiskroppa með hugmyndir. Eins og allt það sem ég kunni sé nú þegar á blogginu eða í bókinni okkar. Ég hef því aðeins verið að leika mér í eldhúsinu til að finna aftur sköpunargleðina í matargerðinni. Það hefur verið ljúft að fá smá tíma til að koma mér aftur af stað og á síðustu vikum hafa allskonar hugmyndir kviknað.
Ég hef tekið eftir því uppá síðkastið að galette bökur eru í mikilli tísku á Instagram. Það virðist vera eitthvað við ófullkomið og “rustic” útlitið á þeim sem heillar marga matarljósmyndara. Ég var ekki alveg sannfærð þegar ég sá myndir af þessum bökum fyrst. Mér fannst þær líta mjög vel út en skildi ekki alveg æðið. Mig fór þó með tímanum að langa að prófa og ákvað að lesa mér smá til. Galette er franskt orð yfir flata kringlóta köku. Algengt er að galette bökur séu gerðar með því að útbúa bökudeig, fletja það út og leggja yfir það fyllingu sem annað hvort er sæt eða sölt. Endarnir á deiginu eru svo brotnir yfir fyllinguna og bakan bökuð í ofninum.
Ég prófaði fyrst að útbúa míní útgáfur fylltar með bláberjum og þær smökkuðust mjög vel, en ég var svolítið óþolinmóð og kældi deigið alltof stutt og notaði smjörlíki við stofuhita í stað þess að hafa það kalt eins og mælt er með að gera. Deigið var því svolítið erfitt að meðhöndla og rifnaði auðveldlega. Ég las mér svo til og fékk nokkur ráð á Instagram og komst að því að mikilvægt er að nota ískalt smjör, ískalt vatn og kæla deigið vel. Ég fór eftir þeim ráðum í dag og bakan varð dásamlega góð og allt annað að meðhöndla deigið.
Um daginn kom á markað nýtt smjörlíki frá merkinu Naturli. Vegan “smörbar” smjörið þeirra hefur fengist í svolítinn tíma og hefur bókstaflega slegið í gegn því það er bæði laust við pálmaolíu og bragðast ótrúlega vel. Ég var því svakalega spennt þegar ég frétti að þau framleiddu einnig smjörlíki sem hentar til baksturs og steikingar. Smjörlíkið þeirra er eins og smörbar smjörið laust við pálmaolíu og er búið til úr shea-, kókos-, raps- og möndluolíu. Ég er nú búin að prófa að baka aðeins úr því og það er dásamlega gott. Smörbar smjörið fæst nú þegar í öllum helstu verslunum landsins en smjörlíkið er einnig væntanlegt í verslanir á næstunni.
Ég er svakalega spennt að prófa fleiri útgáfur af svona galette bökum. Margir útbúa þær með tómötum og góðum jurtum. Ég sé fyrir mér að það gæti verið dásamlega gott að útbúa fyllingu úr möndlu ricotta osti, ferskum tómötum og toppa svo með ferskum jurtum, sítrónusafa og berki, sjávarsalti og ólífuolíu. Ég myndi þá sleppa sykrinum í botninum og bæta við kannski einhverjum kryddum. Eða hafa hann bara klassískan.
Mér þætti gaman að heyra hvort þið hafið einhverjar óskir um uppskriftir núna í vetur. Það fer til dæmis að líða að jólunum, minni uppáhalds árstíð (já jólin eru í mínum bókum heil árstíð), og ég vil að sjálfsögðu útbúa fyrir ykkur eins mikið af gómsætum hátíðaruppskriftum og ég mögulega get! Eins og ég segi hefur pásan verið ansi löng og því þætti mér mjög vænt um ef fólk kæmi með skemmtilegar uppástungur eða áskoranir.
Galette með eplum
Botninn
3 og 1/2 dl hveiti
1 dl sykur
1/2 tsk salt
120 g kalt smjörlíki
ca 40 ml ískalt vatn (ég byrja á því að setja 2 msk í einu og bæti svo við eftir þörfum)
Möndluflögur til að strá á skorpuna (má sleppa)
Aquafaba (kjúklingabaunasafi) til að smyrja skorpuna. Það er líka hægt að nota vegan mjólk.
Fyllingin
3-4 epli (ég notaði 3 og 1/2)
1 dl púðursykur
2 msk sítrónusafi plús smá börkur
1 msk kanill
1/2 tsk malað engifer
1/4 tsk múskat
1 og 1/2 msk hveiti
Karamellusósa
Uppskrift HÉR
Aðferð:
Blandaðu í skál hveiti, sykri og salti.
Skerðu kalt smjörlíki í kubba og notaðu puttana til að brjóta það niður og blanda gróflega við hveitið. Á ensku er þetta útskýrt þannig að smjörið eigi að vera á stærð við “pea” eða græna baun. (Veit ekki aaalveg með þá myndlíkindu á íslensku hehe.)
Bættu ísköldu vatni útí í skömmtum og hrærðu saman með sleif. Ég set nokkrar matskeiðar í einu og bæti svo við eftir þörf.
Stráðu hveiti á borð og færðu deigið yfir á það. Ekki hnoða það mikið en mótaðu úr því kúlu. Pakkaðu henni inní plastfilmu og settu í ísskáp í klukkustund.
Afhýddu eplin og skerðu niður í sneiðar.
Settu þau í stóra skál og hrærðu saman við þau restinni af hráefninum. Legðu til hliðar.
Stráðu hveiti á borð og flettu út deigið í hring. Leggðu fyllinguna á miðja bökuna og hafðu smá spássíu til hliðana svo hægt sé að brjóta deigið aðeins yfir. Það þarf þó ekki að vera mikið pláss, en samt þannig að það nái að pakka fyllingunni aðeins inn.
Brjóttu deigið yfir. Mundu að þetta á ekki að vera fullkomið. Galette bökur eru gerðar til þess að vera svolítið rustic og heimagerðar.
Pennslaðu smá aquafaba eða mjólk yfir skorpuna og stráðu yfir möndluflögum og sykri.
Bakaðu við 190°c í 30-40 mínútur eða þar til bakan er orðin gyllt og fín.
Útbúðu karamellusósuna á meðan.
Leyfið bökunni að kólna í 10 mín áður en hún er skorin. Vanilluís eða vanillusósa er að mínu mati nauðsyn með bökunni.
Takk fyrir að lesa og ég vona innilega að ykkur líki vel.
Helga María