Bruchetta með hvítlauksbökuðum tómötum og rjómaosti
/Bruchetta með heitum tómötum og rjómaosti
Hráefni:
Aðferð:
- Skerið hvítlauksgeirana í þunnar sneiðar. Setið vel af ólífuolíu, tómatana, 2 tsk salt og hvítlaukinn í eldfast mót og bakið í ofni í 45 mínútur við 200 gráður.
- Skerið baguette brauðið þversum í tvennt. Hellið smá ólífuolíu yfir ásamt örlitlu salti og bakið á grill stillingu í ofninum við 220 gráður í 6-8 mínútur. Eða þar til fallega ristað.
- Smyrjið vel af vegan rjómaosti yfir hvora sneiðina, ég set sirka 1/2 dollu á hvort brauð.
- Raðið tómötunum og hvítlauknum jafnt yfir hvora sneið, stráið vegan parmesan yfir ásamt balsamik gljáanum og ferskri basilíku.
- Skerið í bita.