Hátíðleg aspassúpa
/Í dag deilum við með ykkur uppskrift af æðislega góðri rjómalagaðri aspassúpu. Ótrúlega klassísk og einföld súpa með fáum hráefnum sem hver sem er getur auðveldlega útbúið.
Í okkar fjölskyldu er þessi súpa borin fram í forrétt á aðfangadagskvöld og á hún því mjög sérstakan stað í okkar hjarta. Hún er argjörlega ómissandi fyrir okkur á jólunum en hentar að sjálfsögðu vel hvenær sem er á árinu með góðu brauði.
Færslan er unninn í samstarfi við ORA en okkur finnst sá aspas lang bestur í súpuna. Súpan er bökuð upp frá hveitibollu og mjög einföld í matreiðslu.
Við mælum með að bera súpuna fram með hvítu fransbrauði við hátíðartilefni en það passað ekkert smá vel. Einnig er nauðsynlegt að gera stóran skammt til að eiga afganga á jóladag að okkar mati.
Rjómalöguð hátíðar aspassúpa
Hráefni:
- 125 gr vegan smjör eða smjörlíki
- 2 dl hveiti
- 3 dósir aspas
- 2 lítrar ósæt hafra eða sojamjólk
- 1 líter hafrarjómi
- 3 grænmetisteningar
- salt eftir smekk
Aðferð:
- Byrjið á því að bræða smjörið í potti.
- Bætið hveitinu út í smjörið og hrærið vel saman. Slökkvið undir.
- Bætið út í safanum af aspasinum í 3 skömmtum, (Þægilegast er að setja vökvan úr 1 dós í einu) og hrærið vel í á milli með písk svo ekki myndist kekkir. Hrærið þannig að "deigið" sem alveg slétt áður en þið bætið næsta skammti að vökva saman við. (Setjið aspasinn sjálfan til hliðar).
- Bætið 1/2 líter af mjólk út í og hrærið vel með písknum. Kveikið aftur undir pottinum á lágum hita.
- Bætið restinni af vökvanum saman við, ásamt grænmetisteningum og salti.
- Leyfið súpunni að hitna að suðu á lágum hita og hrærið vel í reglulega þar sem súpan getur auðveldlega brunnið við.
- Smakkið til með salti og bætið aspasinum saman við.
- Færslan er unnin í samstarfi við ORA -