Aspassúpa og hátíðar meðlætið │ Veganistur TV │ 7. þáttur
/Aspassúpa
75 gr vegan smjör eða smjörlíki
1 dl hveiti
2 dósir niðursoðinn aspas (soðið og aspasinn)
2 lítrar Oatly Barista mjólkin
4 msk grænmetiskraftur (2 grænmetisteningar)
2 tsk salt
1/2 lítri Oatly iMat matreiðslurjómi
Aðferð:
Bryjið á því að bræða smjörlíki í stórum potti. Þegar smjörlíkið er bráðið setjið hitan á hellunni niður á miðlungs eða lágan hita.
Stráið hveitinu út í smjörið og hrærið það saman í hveitibolli, Bollan á að vera frekar þurr.
Hellið soðinu af tveimur aspadósum í könnu og bætið út í pottinn í nokkrum skömmtum og hrærið vel saman við hveitibollunna. Ekki setja of mikið vökva út í pottinn í einu því þá er líklegra að kekkir myndist í súpunni.
Þegar allt soðið er komið saman við bætið hálfum lítra af mjólkinni saman við og hrærið vel og síðan restinni af mjólkinni.
Bætið grænmetiskrafti og saltinu saman við og leyfið því að hitna þar til suðan kemur upp.
Þegar suðan er komin upp bætið matreiðslurjómanum og aspasinum saman við og hitið í nokkrar mínútur í viðbót.
Berið fram með hvítu hveitibrauði.
Pipar sveppasósa
25 gr vegan smjör eða smjörlíki
2 hvítlauksgeirar
200 gr sveppir
2 tímían stilkar (ferkst)
salt og pipar
1 bréf piparsósa
250 ml vatn
2 msk grænmetiskraftur (1 grænmetisteningur)
250 ml Oatly iMat matreiðslurjómi
1 tsk rifsberjahlaup eða rifsberjasulta
Aðferð:
Skerið sveppina í þunnar sneiðar, kremjið hvítlaukinn og setjið út á heita pönnu mðe vegan smjörinu og tímían stilkunum.
Steikið í nokkrar mínútur þar til að vökvi fer að myndast úr sveppunum.
bætið vatninu, piparsósunni og grænmetiskraftinum út á pönnuna og hrærið saman þar til duftið er alveg komið saman við vatnið.
Bætið rjómanum og rifsberjasultunni saman við og leyfið suðunni að koma upp. Sjóðið í sirka 5 mínútur.
Brúnaðar kartöflur (10 meðalstórar kartöflur)
10-12 soðnar litlar kartöflur
50 gr vegan smjör
100 gr sykur
1/2 dl Oatly-hafrarjómi
Aðferð:
Bræðið sykurinn á meðalhita á pönnu og passið að fylgjast vel með.
Setjið smjörið útí um leið og sykurinn er bráðinn svo hann brenni ekki.
Þegar smjörið er bráðið er slökkt undir, rjómanum hellt útí og hrært standslaust í hálfa mínútu áður en kartöflunum er helt út í.
Eplasalat
2 meðalstór græn epli
1 bolli græn vínber
1 dl Oatly sýrður rjómi
1/2 dl þeyttur vegan rjómi
Aðferð:
Takið hýðið af eplunum og skerið niður í litla kúbba
Skerið vínberin í tvennt
hrærið sýrða rjómanum og þeytta rjómanum saman við ávextina í stórri skál.
-Njótið vel
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Krónuna og Oatly á Íslandi