Anamma hátíðarsteik á tvo vegu
/Þegar ég var yngri var jólamaturinn heilagur fyrir mér. Það var alltaf það nákvæmlega sama í matinn á aðfangadag og því mátti alls ekki breyta. Eftir að ég varð vegan koma hins vegar varla jól nema ég sé með nýjan hátíðarrétt á boðstólnum. Á hverju ári hef ég prófað mig áfram með uppskriftir af alls konar steikum og er oft með fleiri en einn aðalrétt núna í jólamatinn.
Þetta árið er ég búin að vera að prófa mjög einfaldar uppskriftir sem henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að byrja að fikra sig áfram í vegan matargerð og þá sem eru kannski að elda vegan mat fyrir vini eða ættingja en eru ekki vegan sjálf. Í þessar steikur þarf engin flókin hráefni og er matreiðslan sjálf einstaklega fljótleg og einföld. Ég gerði sömu steikina á tvo mismunandi vegu og komu þær báðar virkilega vel út. Steikunar henta einnig fullkomlega með hefðbundnu hátíðarmeðlæti sem er nú þegar á borðstólnum á flestum heimilum landsins.
Wellington steik (fyrir 4 til 5)
6 stk Anamma hamborgarar
4-5 kastaníu sveppir eða tveir portobello sveppir
1-2 skarlott laukar eftir stærð
2 stilkar ferskt tímían eða ferskt rósmarín
salt og pipar
4 hvítlauksgeirar
50 gr vegan smjör
1-2 msk dijon sinnep
1 rúlla tilbúið vegan smjördeig úr kæli eða frysti
Aðferð:
Byrjið á því að setja sveppina, laukinn, 2 hvítlauksgeira og tímían eða rósmarín af einum stilk í blandara og blandið saman.
Leyfið hamborgunum að þiðna og stappið þá saman og mótið í fallega steik.
Bræðið vegan smjör á pönnu með restinni af hvítlauk og rósamríni eða tímían og steikið síðan hamborgarasteikina á öllum hliðum á pönnunni.
Smyrjið sveppablöndunni á smjördeig, penslið steikina með dijon sinnepinu og rúllið steikinni inn í smjördeigið.
Penslið steikina með smá plöntumjólk eða plöntu rjóma.
Bakið við 200°C í 30 til 35 mínútur eða þar til hún verður fallega gylt að ofan.
Steik með púðursykurgljáa
6 stk Anamma hamborgara
1/2 dl púðursykur
2 msk tómatsósa
2 msk sætt sinnep
smá salt
2 ananassneiðar úr dós
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C
Leyfið hamborgunum að þiðna, stappið þá saman og mótið í langa fallega steik.
Bræðið saman púðursykurinn, tómatsósu og sinnepið.
Setjið vel af púðursykurgljáanum (sirka 2/3) á steikina og bakið í ofni í 15 mínútur.
Takið steikina úr ofninum, smyrjið restinni af gljáanum yfir steikina og setjið tvær ananassneiðar á steikina og bakið í 10 mínútur í viðbót.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ásbjörn Ólafsson, Bitz og Anamma á Íslandi.