Hollt og gott Enchilada úr korter í 4 kælinum í Krónunni │ Veganistur x Krónan │ AD
/Hráefni:
1 pakki kjúklingabaunasalat úr korter í 4 kælinum
1 pakki fajitas grænmeti úr korter í 4 kælinum
1 pakki hrísgrjón með sveppum úr korter í 4 kælinum
1 krukka tómat og ólífusalsa úr korter í 4 kælinum eða venjuleg salsasósa
safi úr hálfu lime
6-8 maís tortilla pönnukökur (má líka nota venjulegar tortillakökur)
100-150 ml vegan rjómaostur
Avókadósalat
2-3 avókadó
2 stórir tómatar eða um 6 litlir
safi úr hálfu lime
salt og pipar
ferskt kóríander
Aðferð:
Hitið ofninn við 200°C
Blandið kjúklingabaunasalati, fajitas grænmeti og hrísgjrónum saman í skál ásamt salsanum, geymið 2-3 msk af salsa til að smyrja yfir réttinn í lokin.
Smyrjið hverja tortilla köku með smá vegan rjómaosti, setjið fyllingu inn í, rúllið upp og raðið í eldfast mót.
Smyrjið smá rjómaosti og salsa yfir hverja rúllu fyrir sig.
Bakið í ofninum í 20 mínútur.
Útbúið avókadó salatið með því að skera niður avókadó og tómata og hræra það saman með lime safanum, salti og pipar og sökuðu fersku kóríander.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Krónuna