Brauðterta með baunasalati
/Í dag deilum við með ykkur uppskrift af klassískri brauðtertu með vegan útgáfu af hangikjöts- og baunasalati í samstarfi við ORA. Þessa brauðtertu má ekki vanta á hvaða veisluborð sem er sem og á hátíðisdögum.
Ég notast við blandað grænmeti frá ORA sem er lykilatriði í baunasalatinu og “bacon bites” til að fá smá reykt bragð í salatið. Þetta salat er virkilega einfalt og má vel bera fram eitt og sér með kexi eða brauði.
Ég elska að bera fram klassíska íslenska rétti sem eru hefðir fyrir í veislum og á hátíðisdögum og eru veisluréttir líkt og brauðtertur iðulega það sem slær mest í gegn. Eins og flestir sem hafa fylgt okkur lengi vita elskum við að deila með ykkur alls konar uppskriftum af veislumat og mæli ég með að þið kíkið einnig á þessa brauðtertuuppskrift sem er virkilega góð.
Brauðterta með baunasalati
Hráefni:
- 1 dós blandað grænmeti frá ORA
- 1 dl bacon bites frá Oumph
- 100 gr vegan majónes (+ 2 msk til að smyrja tertuna)
- 1/2 dl vegan sýrður rjómi
- 1/2 tsk salt
- 3 sneiðar brauðtertubrauð
- Grænmeti eftir smekk til að skreyta
Aðferð:
- Blandið saman í skál majónesinu og sýrða rjómanum
- Bætið út í blandaða grænmetinu, beikon bitunum og salti og hrærið saman
- Smyrjið helmingnum af salatinu á brauðtertu brauðsneið og setjið aðra ofan á. Smyrjið restinni af salatinu og lokið síðan með þriðju sneiðinni
- Smyrjið vegan majónesi ofan á og á allar hliðar tertunnar
- Skreytið með fersku grænmeti og kryddjurtum eftir smekk
- Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við ORA -